Humar með lakkríssósu

fyrir 5
15 stórir ferskir og flottir humarhalar
1 grænt epli, fínskorið
300g af smáspínati (baby spinach)

Humarhalarnir eru teknir úr skelinni, en endinn á sporðinum er skilinn eftir. Halarnir eru hreinsaðir vel og kryddaðir með hvítlaukssmjöri. Grillað í ofni á mesta mögulega hita í u.þ.b. 4 mínútur.

Hvítlaukssmjör
150g smjör
2 hvítlauksgeirar
0,5 dl ólífuolía
Salt, pipar og sítrónusafi eftir smekk

Eplin og skallotlaukur er saxað smátt og svisssað á pönnu í 3 msk smjöri, spínati bætt við og velt uppúr í ca 1 mín, kryddað með salt og pipar.

Lakkrísósan
2 Appaló lakkrísrör
1 meðalstór skallot laukur
2 dl balsamic edik
1 matskeið hunang
1 tsk smjör
3 dl kálfasoð

Skallot laukurinn er saxaður mjög smátt og steiktur uppúr smjöri í potti þangað til að hann mýkist og tekur á sig brúnan lit. Lakkrísrörin eru skorin í bita og sett útí, balsamic ediki er bætt við. Lakkrísinn er látinn bráðna í edikinu og saltað og piprað eftir smekk. Eftir að lakkrísinn er bráðinn er hunanginu bætt við. Svo er soðið sett saman við, soðið niður og sigtað.