Hörpuskel með reyktri papriku
Hráefni í paprikumauk:
270 g grilluð paprika í dós
1\2 tsk. reykt paprikuduft
20 g smjör
2 tsk. hlynsíróp
salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
Skolið paprikuna og þerrið með tusku. Takið um það bil 70 grömm af henni frá
fyrir paprikukex en
hitið restina varlega með smjöri í potti í nokkrar mínútur. Setjið svo
paprikuna, smjörið og restina af
hráefnunum í matvinnsluvél og maukið vel.
Hráefni í paprikukex:
restin af paprikunni
2 eggjahvítur
½ tsk. reykt paprikuduft
Aðferð:
Setjið restina af paprikunni í matvinnsluvél ásamt 2 eggjahvítum, ½ tsk. af
reyktu paprikudufti, 1 msk.
af hveiti og smá salti. Smyrjið blöndunni á bökunarpappír og bakið í 140 gráðu
heitum ofni í 20
mínútur, eða þar til kexið er orðið stökkt.
Hörpuskelin:
Takið hörpuskel og þerrið vel. Kryddið með salti, pipar og örlitlu
reyktu paprikudufti. Hitið ólífuolíu á pönnu þar til byrjar að smella í henni.
Steikið þá hörpuskelina
70 prósent á annarri hliðinni og 30 prósent á hinni. Berið réttinn svo fram með
ólífuolíu,
paprikumaukinu og paprikukexinu. Einnig er gott að djúpsteikja hundasúru og
setja með á diskinn.
