Hörpudiskur með súkkulaðibalsamediki
Fíngerður og fallegur forréttur sem gaman er að bera fram.
Súkkulaðibalsamedikið er punkturinn yfir i-ið.
18-24 risahörpudiskar
olía til steikingar
gott blandað salat, helst
með dilli
safi úr 1 límónu
salt og pipar
Setjið örlítið af matarolíu á pönnu og hitið þar til rýkur af henni. Steikið
hörpudiskinn í um 1 mínútu á hvorri hlið. Setjið heitan hörpudiskinn á
salatskreytta diska. Dreypið límónusafa yfir. Saltið og piprið eftir smekk.
Dreypið að lokum sírópinu í kringum hörpudiskinn. Berið strax fram.
SÚKKULAÐISÍRÓPIÐ:
1½ dl balsamedik
3 msk. hunang
30 g Síríus Konsum 70%
súkkulaði
Hitið saman balsamedik og hunang í litlum potti, látið sjóða í 2- 3 mínútur á
háum hita og hrærið vel í á meðan. Bætið súkkulaðinu út í og hitið að suðu.
Takið pottinn af hitanum og hrærið þar til súkkulaðið er bráðnað. Látið sírópið
kólna niður í stofuhita.
