Hörpudiskur með mangósalsa

18-24 risahörpudiskar

2 appelsínur (eða 1 stór), afhýdd og skorin í bita
1 mangó, afhýddur, steinhreinsaður og skorinn í bita
1/3 bit af rauðu chili-aldini, smátt saxað
safi af 1 límónu
2-3 vorlaukar, saxaðir
Balsamic síróp

Blandið ávöxtunum saman við ásamt chili-aldininu, vorlauknum og safanum af límónunni.

Setjið örlítið af matarolíu á pönnu og hitið þar til rýkur af henni. Steikið hörpudiskinn í um 1 mínútu á hvorri hlið, kryddið með sítrónupipar.

Setjið mangósalsa á disk, 2-3 hörpudiska ofan á og balsamic síróp í kring.