Grillaður humar með fersku mangói


Hráefni:

3 stórir humarhalar (120g)
hvítlaukssmjör
rasp
ferskur mangó
sweet chili-sósa
salt og pipar

Aðferð:

Humarhalarnir eru klipptir ofan á og kjötið dregið upp á og hreinsað. Raspi er stráð ofan á þá, og klípu af hvítlaukssmjöri yfir hvern og einn. Bakað í ofni við 200°C í 4-5 mínútur. Lítið af sweet chili-sósu hellt yfir og litlum mangó-teningum raðað ofan á.