Grillaðar bjórrækjur með kaldri hnetusmjörssósu (Forréttur)
Þegar rækjur ber á góma er það helst rækjusalat, fiskisúpa eða djúpsteiktar
rækjur sem flestum
dettur í hug. Það sem mér finnst mest spennandi, ef maður nær í nýveidda rækju í
skelinni, er að
handfjatla hana og bjóða hana þannig í köldum salötum, hráa eða léttsoðna. Þegar
vinir koma saman
og til stendur að setjast niður við kertaljós með hvítvíns- eða bjórglas í
hendi, þá er róandi og gefur
stundinni yfirvegaðan blæ að bjóða uppá grillaðar bjórrækjur með brauði og
hnetusmjörssósu þar
sem gestirnir pilla sjálfir á brauðið. Það að pilla á brauðið sitt gefur hugarró
og nýja óútskýranlega
orku meðan hugleiðingar um lífið svífa yfir vötnum.
Hráefni:
1 kg nýveidd rækja í skelinni
1 dós 500 ml gylltur Viking-bjór
sítrónuólífuolía
Maldon-salt
4-6 ciabatta eða speltbrauð
4 sítrónur
Köld hnetusmjörssósa (hráefni):
2 msk. hnetusmjör
2 msk. majones
2 msk. sýrður 18% rjómi
safi úr ½ sítrónu
1 msk. hlynsíróp
1 tsk. sætt sinnep
pipar
Aðferð:
Rækjurnar skolaðar í köldu vatni og sigtaðar. Bjórnum hellt yfir rækjurnar og
þær látnar liggja í
leginum í 30 mínútur, sigtaðar og sítrónuólífuolíu dreypt yfir ásamt 1 tsk. af
Maldon-salti. Rækjunum
skipt í tvennt. Hvor hluti er grillaður við miðlungshita í grillgrind, rækjunum
velt nokkrum sinnum
en samt varlega. Grillið þar til að skelin fer að hvítna, 5-8 mínútur ættu að
duga. Skerið sítrónurnar í
báta og berið fram með rækjunum. Allt hráefni sósunnar sett í matvinnsluvél,
piprað eftir smekk.
Brauðið skorið í litlar sneiðar og þær léttgrillaðar. Rækjurnar settar á fallegt
fat eða í skál. Sítróna kreist
yfir. Matargestir pilla rækjurnar. Sósu smurt á brauðið og fallegri rækjunni
raðað á. Sítróna kreist yfir
eftir smekk (og kröftum). Ískaldur gylltur Viking eða sætt hvítvín skemmir ekki
stemninguna.
