Grafið kindafillet með sinnepssósu

 

Hráefni:

Kinda- eða lambafillet, án fitu, um 200 g

2 tsk. Maldon-salt eða annað flögusalt

1 msk. blóðberg, þurrkað

1 tsk. herbes de Provence eða

ítölsk kryddjurtablanda (einnig má sleppa blóðberginu og nota 2 tsk af kryddjurtablöndu)

½ tsk. nýmalaður svartur pipar

 

Aðferð:

Best er að nota fremur þunnan vöðva. Salti, kryddjurtum og pipar blandað saman, kjötinu velt upp úr blöndunni og henni þrýst vel inn í vöðvann. Kjötinu pakkað í álpappír eða plastfilmu, sett á lítið bretti eða bakka, annað bretti lagt yfir, sett í ís-skápinn, farg sett ofan á og látið standa í 1-2 sólarhringa. Snúið tvisvar eða þrisvar. Síðan er kjötið skorið í örþunnar sneiðar á ská með beittum hníf og borið fram með salatblöðum, ristuðu brauði og e.t.v. góðu vinaigrette.

 

Balsam-sinneps-vinaigrette

Hráefni:

1 msk. rauðvínsedik

1 tsk. gott balsamedik

1 tsk. dijonsinnep, helst grófkorna

nokkur rósmarínblöð, söxuð smátt

nýmalaður pipar

salt

6 msk. Ólífuolía

 

Aðferð:

Allt nema olían hrært vel saman í skál og síðan er olíunni þeytt saman við smátt og smátt.