Einiberjagrafinn lambavöðvi Með melónu og sinnep- limesósu
1 kg. lambavöðvi (snyrtur og jafnþykkur ca. 5
cm)
½ dl. sykur
½ dl. gróft salt
1 ½ msk. grófmalaður svartur pipar
1 tsk mulin einiber
Öllu kryddinu blandað saman. Kjötið sett í plastpoka og kryddblöndunni hellt í pokann hnýtt fyrir og hrist vel saman. Eða leggið kjötið í bakka og stráið kryddblöndunni vel undir og yfir kjötið, breiðið plastfilmu yfir. Kjötið látið liggja í kæli í ca. 3-4 daga. Takið kjötið úr kælinum og skafið kryddið af og skerið kjötið í örþunnar sneiðar með beittum hníf. (gott er að frysta kjötið og skera það í áleggshníf). Kjötið lagt í þunnum sneiðum á disk eða rúllað upp í rós. Borið fram með þunnum sneiðum af hunangsmelónu og sinnep, limesósu. Sjá uppskriftina undir flokknum sósur