Blandaðir sjávarréttir í smjördeigskörfum

Smjördeig
Rjómi
Parmesanostur
Hörpuskel, sniglar, rækjur,
Sveppir, gulrætur, paprika, blaðlaukur.

Smjördeigið er flatt út í 1 cm þykkt lag og úr því eru lagaðar smjördeigskörfur. Deigið penslað með eggjarauðu og lagt í ofnskúffu með grind yfir. Bakað í 15-20 mín við 150°C. Þegar körfurnar eru bakaðar eru þær kældar og lokið á þeim opnað varlega.
Gulræturnar eru tjúneraðar og forsoðnar í vatni með smjöri og salti.
Rjómanum hellt í annan pott ásamt hvítvíni og fiskikrafti. Látið malla við vægan hita. Paprika, sveppi og blaðlaukur svissað á pönnu. Hörpuskelin skorin í tvennt og sett út í rjómann ásamt svissaða grænmetinu, og gulrótunum, rækjunni, sniglum og pamesanostinum.
Jafnað með maisienamjöli og vatni.
Smjördeigskörfurnar fylltar með blöndunni og skreytt með sítrónu.