Andalæri confit (fyrir fjóra)
Berið fram með ofnbökuðum porobello-sveppum og rauðvínssósu
Andalæri:
4 stk LYBEYRIE andalæri confit, eru seld tilbúin í andafitu og fást í
Nóatúni
salt og pipar
Hitið ofninn í 200°C, hitið lærin í 15 mínútur. Kryddið með salti og pipar.
Rauðvínssósa með grænmeti
10 stk heilir perlulaukar
16 stk heilir litlir flúðasveppir
3 stk lárviðalauf
1 stöngull rósmarín
2 stk gróft skornar gulrætur
3 stk anísstjörnur
2 stönglar gróf skorin sellerí
4 gróf skorin hvítlauksrif
3 bollar rauðvín
svartur pipar
smávegis andakjötskraftur
Steikið allt grænmetið í potti, brúnið vel og hellið rauðvíni yfir ásamt krafti, anís, lárviðarlaufi og rósmarín, sjóðið niður við vægan hita.
Hitið portobello-sveppina í 140°C ofni í 20 mín. Smyrjið með ólífuolíu og kryddið með salti og pipar.