Wagyu nauta carpccio með perum og asískættaðri dressingu

Wagyu-nautakynið er sérstakt fyrir þær sakir að nautin eru alin á bjór og nudduð til að gera kjötið meyrara. Kjötið er mjög dýrt, kostar allt að 16.000 krónur kílóið. Þá er góð lausn að matreiða það sem þunnt skorinn forrétt eins og gert er á jólamatseðli Grillsins. Fyrir 6

300 g Wagyu-nautahryggur

salt

pipar

villisveppaduft (þurrkaðir villisveppir unnir í matvinnsluvél)

10 stk. mulin einiber

Carpaccio er oftast hrátt en við viljum brúna það á sjóðandi heitri pönnu, til að fá reykt bragð í kjötið, þessu má þó sleppa. Gott er að láta kjötið inn í frost í nokkrar mínútur til að auðveldara sé að skera kjötið þunnt (með flugbeittum hníf).

 

ASÍSKÆTTUÐ DRESSING

100 ml gott soð (vatn og kraftur)

1 msk. sojasósa

1 tsk. sesamolía

1 tsk. engifer

1 hvítlauks rif

1 poki gott te

Hitið soðið að suðu og látið kryddið standa í 10 mínútur. Hellið köldum vökvanum yfir carpaccio-réttinn stuttuáður en það er borið á borð. Framreiðið með ferskum perum, stökku brauði og fersku salati