Vestfiskur saltfiskur með suðrænum blæ

Sósa:
1 dós niðursoðnir tómatar
1 stk. laukur, smátt skorinn
2 stk. hvítlauksrif, smátt skorin
Tómat purre
Hvítvín (ekki nauðsynlegt)
Basilíka fersk.
pipar
kjötkraftur
smá sykur

Saxið laukinn, hvítlaukinn og basilíkuna.
Svissað í potti í olíu. Bætið við tómötunum og smá hvítvíni (ekki nauðsynlegt)
Þykkið með tómat purre.
Kryddið til með kjötkrafti og smá sykri. Látið sósuna malla í potti í nokkra stund.

Útvatnaður saltfiskur:
Fiskurinn er skorinn í stykki, honum velt upp úr hveiti svo steiktur í olíu á pönnu með smá pipar.
Næst er hann settur á bökunarpappír á bökunarplötu.
Ein matskeið af sósu er sett á hvert fiskstykki auk osts, og þetta hitað í ofni þar til osturinn er bráðinn.
 

Kartöflur:
Hitið í ólífuolíu í potti og látið 1 stk lauk og 2 stk hvítlauksrif mýkjast í olíunni. Brytjið soðnar og skrældar kartöflur og setjið út í pottinn og hrærið saman. Saltað og piprað eftir smekk. Stráið smátt skorinni steinselju yfir.

Tillaga að framleiðslu:
Kartöflurnar settar á miðjan diskinn þar ofan á eitt fiskstykki, sósan sett meðfram. Einnig er hægt að hafa með þessu ferskt salat.