Tikka masala keila
Fyrir 4
1 kíló ný keila skorin í jafna bita
1 dós hrein jógúrt
1 msk. rifið ferskt engifer
1 msk. saxaður ferskur hvítlaukur
1 msk. saxað ferskt rautt chili
1/2 tsk. malað kóríander
1/2 tsk. malað cummin
salt og pipar
Allt hrært saman og hellt yfir
keiluna.
Látið liggja í 2-3 klst. og fiskbitarnir eru síðan þræddir á grillspjót með
papriku og/eða rauðlauk. Pönnusteikt í 5-10 mín.
Borið fram með hýðisgrjónum, raita-agúrkusósu og naanbrauði.
Raita-agúrkusósa
1 dós hrein jógúrt
10 cm biti af agúrku
1 msk. ólífuolía
saxaður hvítlaukur á hnífsoddi
mynta á hnífsoddi
fáfnisgras (esdragon) á hnífsoddi
1 msk. sítrónusafi
salt og pipar.
Agúrkan er rifin á rifjárni og öllu blandað saman.
Mynd "TikkaMasalaKeila"
