Teriyaki-fiskur
fyrir fjóra
4 100 g fiskflök
1 msk. canola-olía eða hrísgrjónaklíðsolía
Kryddlögur
2 msk. sakí
4 tsk. saltskert sojasósa
Teriyaki-sósa
¼ bolli mirin
2 msk. saltskert sojasósa
1 tsk. hrásykur
Blandaðu saman sakí og sojasósu á grunnum diski. Leggðu fiskbitana á diskinn
(roðið upp ef fiskurinn er með roði) og láttu liggja í um 10 mín. Lagaðu
teriyaki-sósuna með því að blanda saman mirin, sojasósu og sykri í lítilli skál.
Blandaðu vel þar til sykurinn er uppleystur. Hitaðu olíuna á stórri pönnu á
miðlungshita. Þerraðu fiskbitana með eldhúspappír til að þurrka burt allan
umfram kryddlög. Settu fiskinn á pönnuna með roðið niður og steiktu í 5 mín.
Snúðu bitunum við og steiktu í eina mín. til viðbótar. Settu fiskinn á stóran
disk og fjarlægðu roðið. Þurrkaðu alla olíu af pönnunni með eldhúspappír og
stilltu aftur á miðlungshita. Settu teriyaki-sósuna á pönnuna og láttu suðuna
koma upp. Lækkaðu hitann og láttu malla í mínútu. Bættu fiskinum saman við.
Hallaðu pönnunni lítillega til að ná umfram sósunni í teskeið og helltu yfir
fiskinn. Eldað í eina mín. eða þar til fiskurinn er gegnsteiktur. Settu
fiskbitana á diska og helltu heitri teriyaki-sósunni yfir. Mirin fæst meðal
annars í Maður lifandi og Asian á Suðurlandsbraut.