½ kg. Skötuselur eða humar
250 gr. Soðin hrísgrjón
400 gr. Sveppir
250 gr. Mayonnaise
1½ dl. Rjómi
2 stk. Karrý
1 tsk. Paprikku og chili dufti
100 gr. Rækjur
200 gr. Kræklingur
Helmingurinn af hrísgrjónunum sett í smurt eldfast mót.
Fiskurinn smátt brytjaður og settur ofaná.
Steikið sveppina og dreifið þeim yfir fiskinn.
Hrærið saman mayonnaise og 1 dl. af rjómanum,
blandið kryddinu út í og dreifið þessu yfir sveppina.
Rækjurnar, kræklingurinn og afgangurinn af grjónunum og rjómanum jafnað yfir.
Bakið með rifnum osti við 200C° í 30 mín
Borið fram með brauði og salati.