Saltfiskur Strandamanna

700 gr saltfiskur
500 gr kartöflur
80 gr smjör
1-2 laukar eftir stærð
½ græn og rauð paprika
3-4 hvítlauksrif
1 chilipipar rauður
250 ml mysa
3 msk hveiti
1 askja rjómaostur (lítil)
4 döðlur
10 msk ferskur rifinn parmesanostur

1. Beinlaus útvatnaður og roðlaus saltfiskur látinn í kalt vatn og suðan látin koma hægt upp. Fiskurinn er soðinn í u.þ.b. 4 mínútur.

2. Á sama tíma eru kartöflurnar afhýddar og skornar í u.þ.b. 1 cm þykkar sneiðar og snöggsoðnar í u.þ.b. 15 mínútur eða meira eftir stærð. Þeim er svo raðað í eldfast mót og fiskurinn settur ofan á.

3. Smjörið er brætt í potti og grænmetið, þ.e. saxaður laukur, hvítlaukur, chillipipar og paprika, látið krauma þar til að það er orðið meyrt.

4. Hveitinu er stráð yfir grænmetið í pottinum, mysunni bætt við og síðan rjómaostinum. Döðlurnar eru skornar í strimla og bætt út í sósuna, þetta er hrært varlega saman og látið malla. Kryddað með sjávarsalti og svörtum pipar eftir smekk.

5. Sósunni er hellt yfir fiskinn og parmesanostinum stráð yfir og er bakað í 170° heitum ofni í u.þ.b. 20 mínútur.

Mælt er með að saltfiskurinn sé útvatnaður lengi. Það er best að gera það sólarhring áður en hann er eldaður og skipta 3-4 sinnum um vatn á meðan á útvötnun stendur. Eftir að saltið hefur farið út fiskinum er hann mun meðfærilegri í matreiðslu, hvort sem er til að marinera, steikja eða borða hráan sem forrétt. Hrár, vel útvatnaður saltfiskur er frábær forréttur ef hann er skorinn í þunnar sneiðar, sítróna kreist yfir og ólífuolíu og svörtum pipar stráð yfir.