Saltfiskur portkonunnar


Hráefni:

800 g útvatnaður saltfiskur
Aðferð:
Steikið saltfiskinn á pönnu
með ólífuolíu og smjöri


Putanesca-sósan:
150 g svartar ólífur
4 stórir tómatar
½ búnt basillauf
1 hvítlauksgeiri
10 g ansjósur


Aðferð:
Allt er saxað í fína litla teninga og soðið saman í potti þar til blandan er orðin álíka
þykk og vel gerður hafragrautur.

Hvítlaukskartöflumús
Hráefni:
300 g skrældar og gróft saxaðar kartöflur
100 g rjómi
50 g íslenskt smjör
1 hvítlauksgeiri, fínt saxaður

Aðferð:
Kartöflurnar eru soðnar við vægan hita með smá salti þar til þær eru allt að því fullsoðnar. Þá eru þær sigtaðar og látnar standa í 5 mínútur, á meðan er rjóminn og smjörið soðið saman ásamt fínt söxuðum hvítlauk. Þá er kartöflunum bætt í og öllu blandað saman með sleif. Blandið hægt og varlega svo músin verði ekki seig.