Plokkfiskur (Fyrir 4)
400-500 g soðinn fiskur
3-4 soðnar kartöflur
Hrærið fiskinn í sundur og stappið eða skerið kartöflurnar í bita.
Jafningur
1 laukur, saxaður
3 msk matarolía
1/2 dl hveiti eða heilhveiti
3-4 dl léttmjólk og eða fiskisoð
1/2 tsk salt
pipar og sinnep (ef vill)
Hitið olíu í potti og kraumið laukinn. Sáldrið hveitinu yfir laukinn og
hrærið.
Bætið mjólkinni smám saman út í pottinn, hrærið stöðugt í á meðan.
Kryddið með salti, pipar og sinnepi (ef vill).
Blandið fiski og kartöflum saman við og hitið í gegn.
Berið fram soðnar rófur og gulrætur og rúgbrauð með réttinum.