Humarfylltar andabringur með vínberjasósu og fersku eplasalati

AÐALRÉTTUR FYRIR 6

12 stk. andabringur (meðalstórar)

12 -16 stk. humar (færður úr skel og hreinsaður)

olía til steikingar

salt og pipar

Skerið lítið gat í þykkari enda andabringu. Þrýstið stál- eða sleifaenda inn í bringu til að búa til svæði fyrir humar. Þrýstið honum þar inn. Brúnið bringur í olíu á pönnu, kryddið með salt og pipar. Setjið á grind í ofni og steikið við 170°C í 10 mínútur.

 

VÍNBERJASÓSA

5 dl soð (villibráðarsoð)

1 dl rjómi

100 g gráðostur

20 stk. græn vínber (skorin í tvennt

og steinhreinsuð)

ögn kjötkraftur

2 tsk. rifsberjahlaup

sósujafnari

salt og pipar

Setjið soð í pott og bætið í rjóma og gráðaost. Þykkið með sósujafnara, bragðbætið með kjötkrafti, salti, pipar og rifsberjahlaupi. Látið krauma í fáeinar mínútur. Bætið vínberjum í sósuna rétt áður en hún er borin fram.

FERSKT EPLASALAT

3 rauð epli (steinlaus og smátt skorin)

3 rauðlaukar (smátt skornir)

4 msk. fersk steinselja (smátt söxuð)

Öllu blandað saman og bleytt upp með balsamic-kremi. Réttur er borinn fram með kartöflum, fersku salati eða grænmeti. Allt hráefni fæst í helstu matvöruverslunum landsins.