Humarréttur Grétu
Steikið humar með skel upp úr smjöri
Kryddið með hvítlaukssalti, hvítlauksdufti og aromat.
Hellið rjóma yfir og látið suðu rétt koma upp.
Smakkið til með kryddunum, ef þarf er gott að setja smá kjöt og grill krydd.
Berið fram í súpuskál með ristuðu brauði.