Fiskpanna með osti
Frá Osta- og smjörsölunni

750 g fiskflök
1 1/2 tsk salt
4/5 tsk pipar
1,5 stk laukur sneiddur
250 g ostur 26% rifinn, mjög gott að nota krydd-Havarti
2 stk tómatar sneiddir
1 dl ostur rifinn



Notið ýsu, þorsk eða skarkolaflök,roðflettið flökin, skerið þau í bita og raðið á þurra pönnuna.
Stráið salti og pipar yfir.
Raðið lauksneiðunum yfir ásamt tómatsneiðum eða notið ½ dl tómatmauk og dreifið yfir.
Þekið vel með rifnum osti.
Sjóðið við vægan hita í 15-20 mín.
Berið réttinn fram í pönnunni, með hrærðum kartöflum og salati.