Fiskibollur

1 kg ýsa (gott að hakka ýsu og þorsk saman)
4 laukar, hakkaðir
3 egg
1 msk. salt
2 msk. Aromat
1 tsk. pipar
1 tsk. sítrónupipar
2 dl mjólk
1 1/2 bolli kartöflumjöl
2 1/2 bolli hveiti
2 tsk. lyftiduft
Hrærið fisk, lauk og krydd saman. Bætið eggjum og mjólk í og síðast þurrefnunum. Hrærið allt vel. Mótið bollurnar með ískúluskeið sem dýft er í vatn á milli og steikið í olíu á pönnu. Sjóðið í 10 til 15 mínútur. Berið kartöflur og ferskt grænmeti fram með bollunum, ásamt laukfeiti eða einhverskonar sósu.