Fish and chips

Rakst á ansi skemmtilega uppskriftabók sem heitir fiskveisla fiskhatarans eftir Gunnar Helga Krisinsson, ég mæli eindregið með þessari bók, ekki eingöngu uppskriftanna vegna heldur er hún bráð skemmtileg. Hér kemur ein uppskrift þaðan.

Um það bil 1 kg af þorskflökum er hreinsað vel, roðflett og skorið í bita. Yfir fiskinn er dreift rifnum berki af hálfu lime og smáslettu af safanum. Búið til djúpsteikingardeig úr einu hrærðu eggi, 3-4 msk af hveiti, 1 tsk af olíu, nýkvörnuðum pipar, 1 tsk salt, 1/2 tsk af laukdufti, ofurlitlu túrmeriki og smábökunardufti. Fiskistykkjunum er dýft ofan í þetta og þau síðan djúpsteikt í mjög heitri olíu í skamma stund (olían þarf að vera nógu heit til að brúna deigið án þess að fiskurinn verði ofsteiktur). Fiskurinn er borinn fram með frönskum kartöflum og tartarsósu. Mælt er með tilbúnum ofnhituðum frönskum kartöflum.

Tartarsósan er frá Delíu Smith, slyngri matreiðslukonu sem er einn af uppáhaldskokkum Breta.
Einu eggi, 1/2 tsk af salti, nýmöluðum svörtum pipar, einu hvítlauksrifi og 1/2 tsk af sinnepsdufti er komið í blandara og keyrt örstutt saman. Síðan er ólífuolíu helt út í, fyrst í dropum, svo í smáskvettum og loks í mjórri bunu, samtals 170 ml. Næst er sósan tekin úr blandaranum og færð yfir í skál. Þar er bætt í hana 1 msk af ferskum limesafa, 1 kúffullri skeið af kapers, 1 mks af fersku (söxuðu) kóríander og 3-4 söxuðum gúrkum. Smakkið til með salti og pipar