Ekta panella

Hráefni:
120 g hörpuskel
12 stk. kræklingur í skel
8 humarhalar
400 g soðin hrísgrjón
3 dl humarsúpa
4 dl Romesco sósa
Aðferð:
Stór panna er hituð vel upp og skelfiskurinn steiktur. Sósunum bætt út í og suðan látin koma upp.
Því næst er hrísgrjónunum bætt við og soðið þar til blandan er orðin þykk. Það er mjög gott að rífa
Manchego ost yfir rétt áður en rétturinn er borin fram.

Romesca sósa (hráefni):
1 laukur
4 paprikur
4 hvítlauksrif
oreganó eftir smekk
ferskt basil eftir smekk
1l maukaðir tómatar í dós
salt og pipar
kjúklingakraftur
Aðferð:
Grænmetið er svitað í potti, vökva, kryddi og tómötum bætt við og soðið vel niður þar til góðri sósuþykkt er náð.