Ýsugratín

1 kg ýsuflök
2 stk hvítlauksgeirar
2 msk karrímauk, milt
1 msk Tikka Masala mauk
1 haus brokkoli
3 msk sýrður rjómi
3 msk rjómi
100 g hveiti
1 tsk karríduft
salt og pipar
2 msk ólífuolía
200 g mozzarellaostur, rifinn
1 tsk rifið múskat

Roð- og beinhreinsið ýsuflökin og skerið í bita. Afhýðið og pressið hvítlauk. Hrærið karrímauki og Tikka Masala mauki saman og bætið hvítlauknum út í. Skerið brokkólí í bita. Hrærið sýrðum rjóma saman við karrímaukið.Blandið saman hveiti og karrídufti, salti og pipar. Veltið ýsunni upp úr kryddaða hveitinu. Steikið í olíu á pönnu í um 1 mín. á hvorri hlið. Setjið ýsubitana og brokkolí í eldfast mót.  Hellið karríblöndunni yfir fiskinn og dreifið rifnum mozzarellaosti yfir. Bakið við 200°c í um 15 mín. Rífið múskatið yfir réttinn þegar hann er tekinn úr ofninum.