Ýsuflök með karrí chutney sósu

800 g ýsuflök
2-3 msk ólífuolía
salt

Roð og beinhreinsið ýsuflökin og skerið í 100-200 g stykki. Steikið í ólífuolíu á pönnu í um 2 mín á hvorri hlið. Kryddið með salti. Berið réttinn fram með hrísgrjónum, soðnu grænmeti og karrí chutney sósunni.

Karrí chutney sósa
1/2 stk laukur
1/4 stk epli, grænt
2 tsk karrí
2 dl fisksoð
2 msk mangó chutney, sætt
1 dl hvítvín
1 dl rjómi
kjúklingakraftur
maizenamjöl

Afhýðið og saxið lauk. Afhýðið epli og skerið í fína teninga. Mýkið lauk og epli í olíu í potti og bætið karríi saman við. Setjið fisksoð, chutney og hvítvín út í pottinn og sjóðið við hægan hita í 1 mín. Hellið rjómanum út í og látið suðuna koma upp. Bragðbætið með kjúklingakrafti og þykkið með maizenamjöli.