Ýsu-buff
500 gr hökkuð ýsa
2-3 msk hveiti
1 tsk salt
1/8 tsk pipar
2 laukar
50 gr smjörlíki
3 dl vatn eða fisksoð
2 msk hveiti
1 dl mjólk eða vatn
Blandið hveiti og kryddi saman við fiskhakkið og hnoðið, mótið í aflangt deig á bretti. Skiptið deiginu í 8 jafnstóra bita og mótið í kringlóttar flatar buffkökur. Skerið laukinn í sneiðar og steikið í helmingi feitinnar. Brúnið buffin í því sem eftir er af feitinni og takið þau af pönnunni. Hellið vatninu (soðinu) á pönnuna og jafnið með hveitijafningi (2 msk hveiti og 1 dl mjólk eða vatn). Sjóðið í 3-5 mín kryddið með salti og pipar gott er að krydda með tómatsósu eða soðkrafti. Setjið buffin út í sósuna, laukinn yfir og sjóðið í 3-5 mín. Berið buffin fram með soðnum kartöflum og hrásalati.