Ýsa í dulbúningi
fyrir 4
4-5 tómatar, vel þroskaðir
2 kúfaðar msk mauk úr sólþurrkuðum tómötum
e.t.v. svolítið vatn
600-700 g ýsuflök, roð- og beinlaus
nýmalaður pipar
salt
1 msk olía
svartar ólífur, steinlausar
1-2 kúlur ferskur mozzarella ostur
Skerið tómatana í bita og setjið þá í pott ásamt tómatmaukinu. Hitið að suðu og látið malla í 10-15 mínútur, eða þar til tómatarnir eru mauksoðnir og sósan þykk. Ef hún þykknar um of má bæta svolitlu vatni svo að hún brenni ekki. Hitið grillið í ofninum. Skerið fiskinn í stykki, kryddið þau með pipar og salti og raðið á bökunarplötu klædda olíubornum álpappír. Brjótið upp á þynnstu stykkin svo að þau séu tvöföld. Smyrjið sósunni jafnt á fiskistykkin. Skerið ólífurnar í tvennt og raðið þeim ofna á. skerið ostinn í bita og dreifið þeim yfir. Setjið plötuna ofarlega í ofninn (helst um 10-12 cm frá grillelementinu) og grillið fiskinn í 8-10 mínútur, eða þar til hann er rétt eldaður í gegn og osturinn er bráðinn og hefur tekið góðan lit. Berið fram með soðnum kartöflum og góðu salati.