Veisluréttur úr nýjum fiski
600 g nýr fiskur, gott að blanda mörgum tegundum saman til dæmis:
150 g lúða
150 g hörpudiskur
150 g skötuselur
150 g humar
ólífuolía
hvítlaukur
smátt skorinn laukur
gulrætur í fínum strimlum
spergilkál
timían, ferskt eða þurrkað
hvítvín eða mysa
svartar ólífur
salt og grófur svartur pipar
slatti af rjóma ef fólk vill
Fiskurinn er skorinn í bita og beinhreinsaður. Laukur, hvítlaukur, gulrætur og
spergilkál gljáð í olíunni, hvítvínin og mysu hellt yfir. Suðan látin koma upp
og þá er fiskurinn settur út í .
Soðið í um 5 mínútur eða þar til fiskurinn er næstum soðinn. Þá er hörpudisknum,
ólífunum og rjómanum bætt í og látið hitna vel. Kryddað með timíani, salti og
pipar og borið fram með fersku spaghettíi, rifnum parmessan og grófu brauði.