Ufsi í tandori með raita og nanbrauði
2-3 ufsaflök, skorin í bita
3 dl súrmjólk (sigtuð í gegnum kaffisíu yfir nótt)
1 sítróna, safi og börkur rifinn með fínasta Microplate rifjárninu.
Blandið öllu saman, Setjið ufsabitana út í og geymið í lokuðu íláti í kæliskáp
yfir nótt.
Raðið ufsabitunum á langt spjót með rauðri og grænni papriku á milli.
Bakið í tandooriofninum í 4-6 mínútur eða á útigrillinu í 10-12 mínútur.
Raitasósa
1 dós hreint jógúrt
1 smátt söxuð agúrka, án kjarna
1/2 tsk svartur pipar
1/2 tsk broddkúmenfræ, ristuð og möluð í morteli
1/2 tsk hvítlaukur, smátt saxaður
Saltið agúrkurnar og látið standa í 12-20 mínútur. Skolið og blandið saman við
jógúrtið og smakkið til með kryddinu. Gott að gera sósuna kvöldið áður.
Nanbrauð
1 tsk þurrger
1 tsk hrásykur
200 g hveiti
1/4 tsk salt
1/2 tsk lyftiduft
1 msk olía
4 - 6 msk AB-mjólk
Öllu blandað saman og hnoðað í 4-8 kúlur sem eru flattar út í höndunum og
bakaðar í tandooriofni. Má líka baka í venjulegum ofni við 220° hita eða á
pönnu.
Útigrillið mætti hugsanlega einnig nota, séu menn djarfir.