Ufsaplokkfiskur í sparifötunum

800 g ufsi, roðlaus og beinhreinsaður
10 hvítlauksgeirar
7-10 kartöflur
1-2 laukar
1/2 bolli smátt söxuð fersk basilíka
4-6 sætar kartöflur
2 msk rifinn parmesanostur
2 ítalskir ostar með sólþurrkuðum tómötum
1/2 krukka svartar ólífur
rjómasletta
smjör
pipar og salt

Sjóðið kartöflurnar, látið suðuna koma upp á fiskinum og setjið pottinn til hliðar. Setjið smjör í pott og látið smátt saxaðan laukinn krauma á hægum hita þar til hann er orðinn mjúkur. Bætið smátt söxuðum hvítlauk út í og látið mýkjast. Setjið rjómaslettu og og bitaðan ost saman við, hrærið stöðugt í þar til osturinn hefur gefið sig. Því næst eru kartöflurnar stappaðar, ásamt kryddinu í kartöflustappara.Fiskurinn og smátt söxuð basilíkan sett út í og stappað. Látið malla á vægum hita um stund og hrærið varlega í jafnt og þétt, smakkað til og kryddað. Sætu kartöfluranar afhýddar, soðnar, stappaðar og settar á diskana undir plokkfiskinn. Svörtum smátt skornum ólífum ásamt rifnum parmasan osti stráð yfir. Borið fram með heimabökuðu rúgbrauði með vænni smjörklípu eða Grissini brauðstöngum.