Þorskur með kókos og súraldini
fyrir 2-3

400 g þorskhnakki
2 msk. ólívuolía
125 ml kókósmjólk
safi úr einu súraldini (lime)
börkur af hálfu súraldini

Þorskurinn er steiktur á pönnu í olíunni, 5 mínútur á hvorri hlið. Bætið kókosmjólkinni, súraldinsafanum og berkinum út í eftir að fiskur hefur verið í 2 mínútur á seinni hliðinni og látið malla í smástund. Stráið ferskum graslauk og grófum kókosflögum yfir réttinn.

Sæt kartöflumús
500 g sætar kartöflur
2 msk. hlynsíróp
80 ml rjómi
hnífsoddur af salti
hnífsoddur af chilikryddi

Hitið ofninn í 180°C Skerið kartöflurnar í tvennt og pakkið þeim í álpappír og bakið þær í ofninum í 45-60 mínútur eða þangað til að þær eru eldaðar í gegn og vel mjúkar. Skafið innivolsið úr kartöflunum og setjið í skál og bætið hlynsírópinu, rjómanum, saltinu og chilikryddinu við og hrærið létt í með handþeytara.