Þorskpottur

1 þorskur, um 1 kg
sítrónusafi
nýmalaður pipar
salt
2 laukar
4-5 tómatar
1 rauð paprika
1 lítill kúrbítur
2 msk ólífuolía
2 lárviðarlauf
1/4 tsk kóríanderfræ, steytt
200 ml þurrt hvítvín

Fiskurinn skolaður, skafinn, þunnildin skorin af og svo er fiskurinn
þverskorinn í um 3 cm þykkar sneiðar. Svolitlum sítrónusafa dreypt á hann og
hann kryddaður með pipar og salti og látinn standa smástund. Laukurinn
saxaður. Tómatarnir helmingaðir, fræin skafin út með skeið og síðan er
tómatkjötið skorið í bita. Paprikan fræhreinsuð og skorin í ræmur og
kúrbíturinn skorinn í tvennt eftir endilöngu og síðan skorinn í 1 cm þykkar
sneiðar. Olían hituð á stórri pönnu með loki eða í víðum potti og laukurinn
látinn krauma í henni í nokkrar mínútur án þess að brúnast. Tómötum, papriku
og kúrbít bætt út í ásamt lárviðarlaufi og kóríanderfræi, kryddað með pipar
og salti og látið malla í um 5 mínútur í viðbót. Þá er fisksneiðunum raðað í
pottinn, hvítvíninu hellt yfir, lok sett á pönnuna og látið malla við vægan
hita í 8-10 mínútur, eða þar til fiskurinn er rétt soðinn og unnt að losa
hann frá beinum. Borið fram t.d. með góðu salati og brauði.