Tex-mex ýsa með tortillapönnukökum (fyrir4)

 

700 g ýsuflök, roð- og beinlaus
1 msk matarolía
½ tsk salt
pipar
1 paprika, söxuð
1 laukur, saxaður
1 chilipipar, saxaður
1 dós maísbaunir
½ - 1 poki taco-kryddblanda
1 dl vatn
6 tortilla-pönnukökur

Skerið ýsuna í frekar smáa bita og snögg steikið í ½ msk af olíu. Saltið og piprið. Haldið heitri.
Snöggsteikið saxað grænmetið í ½ msk af olíu. Bætið maísbaununum, taco-kryddblöndunni og vatni út í. Sjóðið í 2 mínútur.

Hitið pönnukökurnar á þurri pönnu eða í ofni og fyllið með fiski og grænmeti.

Rúllið kökunum upp og berið fram með tómatsalsasósu og sýrðum rjóma (5%) ef vill.