Tex-Mex
FORRÉTTUR EÐA STAKUR RÉTTUR
1 kg lax eða lúða (roðlaus og beinlaus)
1 bolli limesafi
Skerið fisk í litla bita, hellið limesafa yfir og látið liggja í 30 mínútur
KRYDDBLANDA
4 msk. jalepeno (niðursoðinn, smátt saxaður)
½ bolli fylltar ólívur (smátt skornar)
1 stór laukur (smátt saxaður)
2 stk. hvítlauksrif (smátt söxuð)
1 msk. ferskt kóríander (smátt saxað)
1 msk oregano (þurrkað)
½ bolli tómatsósa
1 tsk. salt
1 msk. worchestersósa
Sigtið fisk úr limesafa. Setjið á fat. Blandið öllu hráefni í kryddblöndu saman
og blandið varlega saman við fisk. Setjið lok eða plastfilmu yfir og látið
marinerast í 2 sólarhringa. Blandið saman við fisk ½ haus af smátt söxuðum
iceberg, 3 stk. af ferskum tómötum, skornum í báta, ásamt 3 msk. af ferskri
steinselju, áður en hann er borinn fram. Framreitt með sýrðum rjóma og brauði.