Stórlúða með cammembert (fyrir 6)
6 stk. (200 gr.) stórlúða í sneiðum
1 cammembertostur
salt og pipar
sítróna
Meðlæti
1 dós tómatmauk með kryddjurtum og hvítlauk (Hunt's)
1 1/2 dl. rjómi
salt og pipar
Meðlæti
belgbaunir
Aðferð
Skerið vasa í lúðusneiðarnar og fyllið með sneiðum af ostinum. Raðið á
smurða ofnskúffu
og kreistið safa úr sítrónu yfir. Kryddið með salti og pipar. Bakið í 180°
heitum ofninum í 15 mín. Lagið á meðan sósuna. Tómatrjómi: sjóðið saman
tómatana úr dósinni og rjómann kryddið með salti og pipar.
Setjið sósuna á disk og leggið fiskinn ofan á . skreytið með fersku basil. Gott
er að bera fram með soðnum belgbaunum sem meðlæti. Belgbaunir:
Snöggsjóðið baunirnar í söltu vatni í 2 mín.