Stórlúða með ananas-mangó salsa
800 g stórlúða
2 msk. smjör
1 msk. ólífuolía
gróft sjávarsalt
hvítur pipar úr kvörn
Roðflettið og snyrtið lúðuna. Skerið í jafna bita og steikið við miðlungshita
upp úr smjöri og ólífuolíu í um 2 mín. á hvorri hlið. Steikingartíminn fer eftir
þykkt.
Ananas-mangó salsa
1/2 stk. ferskur ananas
1 stk. þroskaður mangó ávöxtur
2 sm engiferrót
1–2 stk. hvítlauksgeirar
1/3–1/2 stk. rautt chilialdin
lítið búnt kóríander
1 stk. lime, safinn
3 msk. kornolía
gróft sjávarsalt
pipar úr kvörn
Fjarlægið hýði, kjarna og stein úr ananas og mangói. Skerið ávextina í teninga.
Saxið saman engiferrót, hvítlauk, chili og kóríanderlauf. Blandið saman við
ávaxtateningana og kreistið safa úr einu lime yfir. Setjið kornolíu yfir og
saltið og piprið eftir smekk. Látið standa í lokuðu íláti í kæliskáp í minnst 2
klst. áður en rétturinn er borinn fram.
Berið fram með soðnum „long grain Louisiana“ hrísgrjónum sem soðnum svörtum
baunum hefur verið blandað saman við. Saltið og piprið eftir smekk. Gott að bera
stökkt salat fram með réttinum.