Steinbítur með tómötum og chili

600 - 700 g steinbítsflök, roð- og beinlaus
nýmalaður pipar
salt
2 rauðlaukar
2-3 hvítlauksgeirar
3 msk ólífuolía
4-5 tómatar, vel þroskaðir
safi úr 1 sítrónu
1/2 rautt chili aldin
2-3 msk steinselja, söxuð

Hitið ofninn í 200°C. Skerið fiskinn í stykki og kryddið með pipar og salti. Saxið rauðlauk og hvítlauk. Hitið 2 msk af olíu á pönnu og látið rauðlaukinn og hvítlaukinn krauma í smástund án þess að brenna. Dreifið lauknum svo á botninn á eldföstu móti. Skerið tómatana í sneiðar og dreifið yfir. Raðið fiskbitunum ofan á, kreistið sítrónusafa yfir, setjið í ofninn og bakið í 10-15 mínútur, eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Berið fram með kúskúsi eða soðnum hrísgrjónum.