Steiktur lax á grænmetisbeði

700 g lax, hreinsaður
300 g grænmeti (spergilkál, gulrætur, blaðlaukur, blómkál), skorið í bita
1 dl hvítvín (eða Sunnu eplasítra)
2 dl rjómi
Létta
pikanta
hveiti
salt
pipar

Veltið laxinum upp úr hveiti og steikið á pönnu í Ljóma. Kryddið með salti og pipar. Bætið skorna grænmetinu á pönnuna og látið malla í u.þ.b. 1 mín. Fiskurinn er þá tekinn af pönnunni og haldið heitum. Hvítvíni (eða Sunnu eplasítru) er nú hellt yfir pönnuna og látið sjóða í u.þ.b. 1 mín., þá er rjómanum bætt út í og látið malla í u.þ.b. 2 mín. og Létta síðan klipið út í og hrært í á meðan kryddað er með pipar og pikanta. Berið fram með soðnum kartöflum.