Steiktur þorskhnakki með kryddpylsu, súrsuðum agúrkum,
brúnuðu smjöri og nýjum brúnuðum kartöflum
Þorskur:
4 stk þorsksteikur ca 180 gr hvert
3 msk olía
2 msk smjör
2 tsk hvítlauksgeirar, skornir í tvennt
salt og pipar
Súsaðar agúrkur og sellerí:
1/2 agúrka, afhýdd og kjarnhreinsuð
2 stk stangsellerí
1 búnt ferskt dill, saxað
1/2 tsk salt
1/2 tsk sykur
3 msk hvítvínsedik
Brúnað smjör:
250 g smjör (sett í pott og hitað við miðlungshita þar til freyðir og brúnast,
sigtað og kælt)
100 g kryddpylsa, skorin í litla teninga
2 stk skarlottulaukur, fínt saxaður
1/2 búnt steinselja, söxuð
1 tsk sítróna, börkur fínt rfinn og safin kreistur út
salt
Nýjar brúnaðar kartöflur:
200 gr nýjar kartöflur, soðnar og afhýddar
2 msk smjör
1 msk sykur
salt og pipar
Aðferð
Þorskur:
Hitið góða steikarpönnu þar til hún fer að rjúka og bætið olíu út á og
þorsksteikunum. Steikið í ca 3-5 mín og snúið við. Bætið hvítlauk og smjöri á
pönnuna og látið freyða, steikið í 2 mín í viðbót og ausið smjörinu reglulega
yfir þorskinn. Takið af hitanum og látið standa í 3 mín áður en borið er fram,
þú vilt að fiskurinn sé smá blær við miðju og losni í sundur þegar að þrýst er á
hann. Kryddið og berið fram.
Súrsaðar agúrkur og sellerí:
Setjið allt saman í skál og blandið vel saman. Látið standa í 5 mín og berið
fram með þorskinum.
Brúnað smjör:
Blandið öllu saman í lítinn pott og bragðbætið með salti. Berið fram volgt með
fiskinum.
Nýjar brúnaðar kartöflur:
Setjið smjörið á pönnu og hitið við miðlungs háan hita, bætið kartöflum á
pönnuna og steikið þar til þær fara að brúnast. Bætið sykri við og látið
karamellast. Kryddið til með salt og pipar. Berið fram með þorskinum.