Steiktur saltfiskur með rauðlauk, kapers, tómötum og hvítlauk
ólífuolía
1 rauðlaukur, skorinn í sneiðar
6 hvítlauksrif
2 msk kapers
1/2 dl hvítvín
1 dós niðursoðnir tómatar, skornir í bita og vökvinn sigtaður frá
120 g svartar ólífur
1 búnt basil
800 g saltfiskur, útvatnaður
nýmalaður pipar
Hitið ofninn í 200°C. Hitið olíu í potti, setjið laukinn út í og steikið við
vægan hita í stutta stund.
Bætið þá hvítlauk og kapers við og því næst hvítvíni, tómötum og basil. Látið
sjóða við vægan hita.
Hitið olíu á pönnu, steikið saltfiskbitana í u.þ.b. 2 mínútur á hvorri hlið og
kryddið með pipar.
Hellið sósunni á pönnuna, stingið henni í ofninn og bakið í 5-7 mínútur. Ef
pannan þolir ekki að fara
í ofn má setja réttinn í eldfast mót eða í ofnskúffuna.