Steiktur saltfiskur með púrtvínsaprikósum og grænum pipar

100 gr þurrkaðar apríkósur
1 1/2 dl púrtvín
400 - 500 gr saltfiskur, roðflett og skorið í 4-6 stykki
Hveiti
Nýmalaður, svartur pipar
Olía til steikingar
2-3 hvítlauksrif, skorin í þunnar sneiðar
2 msk grænn pipar í legi
1 msk balsamedik

Skerið apríkósurnar í litla teninga og setjið í skál. Hellið púrtvíninu yfir og látið standa í a.m.k. 2-3 klukkutíma.
Veltið saltfiskstykkjunum upp úr hveiti og malið svolítinn pipar yfir. Steikið fiskinn í olíu á vel heitri pönnu í 3-4 mín. Hvoru megin, færið hann síðan yfir á fat og haldið honum heitum. Bætið þá apríkósunum með vínleginum, ásamt grænum pipar á pönnuna og látið sjóða. Bragðbætið með balsamediki og látið krauma stutta stund. Hellið síðan af pönnunni yfir fiskinn á fatinu. Berið fram með góðu brauði og fersku salati með salatfíflum.