Steiktar rækjur með chili og vorlauk

250 g hráar risarækjur, helst í skel
1 msk ólífuolía
1 rautt chilialdin, fræhreinsað og saxað
grænu blöðin af 5-6 vorlaukum, söxuð
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
1 msk steinselja, söxuð
nýmalaður pipar
salt

Rækjurnar látnar þiðna. Olían hituð á pönnu og chili, vorlaukur og
hvítlaukur sett á pönnuna og steikt í 1 mínútu. Rækjurnar settar á pönnuna
og steiktar í um 1-2 mínútur á hvorri hlið, eða þar til þær hafa tekið lit.
Steinselju dreift yfir, kryddað með pipar og salti, hellt í hitaða skál og
borið fram.