Soðin ýsa (fyrir 4)

800g ýsuflök, með roði eða roð- og beinlaus
1l  vatn
1 tsk salt
10 stk piparkorn (ef vill)
1-2 lárviðarlauf (ef vill)

Sjóðið saman vatn, salt, piparkorn og lárviðarlauf í nokkrar mínútur.
Skerið fiskinn í stykki og setjið út í sjóðandi kryddvatnið.
Slökkvið undir pottinum og látið fiskinn bíða í vatninu þar til hann er hvítur í gegn.

Gúrkusósa

1 dós sýrður rjómi (180ml), 5%
1 tsk dijon sinnep
1 tsk balsamedik
3 msk sweet telish eða súrar gúrkur, smátt saxaðar.

Blandið öllu saman, ef vill má bæta smátt söxuðu harðsoðnu eggi út í.

Berið fiskinn fram með soðnum kartöflum og gúrkusósu.