Snöggristaður saltfiskhnakki með chili-sveppasoði og parmesan tagliatelle frá Kaffi krús
Fyrir fjóra

Saltfiskshnakki, skorinn í hæfilegar steikur.

Aðferð:

Ristið á heitri pönnu, þar til roðhliðin verður dökkbrún. Snúið þá við. Setjið í eldfast mót og inn í ofn með svörtum pipar, fersku rósmarin og sítrónuolíu í 8 til 10 mínútur við 180 gráður.

Chili-sveppasoð

4 bollar fisksoð (eða vatn og 1 tsk. kjúklingakraftur og 1 tsk. Fiskkraftur blandað saman)

1 rauður chili, hreinsaður og skorinn í litla bita

½ box sveppir, þunnt sneiddir

½ laukur

2 rif hvítlaukur, þunnar sneiðar

1 tsk. nýmulinn pipar

1 msk. smjör

Aðferð:

Mýkið chili, sveppi, lauk og hvítlauk í smjöri. Hellið soði út í.

Parmesan tagliatelle

1 pk. tagliatelle

2 msk. söxuð steinselja

3 msk. ólífuolía

1 msk. sítrónusafi

2 msk. fínt rifinn parmesan

Aðferð:

Sjóðið tagliatelle í um það bil 8 til 10 mínútur eða þar til það verður nett stökkt undir tönn. Blandið tagliatelle, olíu, steinselju og parmesan saman í skál. Setjið fyrir miðju á djúpum disk. Saltfiskhnakki fer þar ofan á. Hellið loks chilisoði létt yfir. Skreytið að vild og berið fram með grænmeti að eigin vali.