Skötuselur með sellerírótarmauki
800 g skötuselur
salt og pipar
Hreinsið skötuselinn og skerið í jafna bita, kryddið með salti og svörtum pipar
og grillið í 2–3 mín. á hvorri hlið. Berið fram með seljurótarmaukinu
hvítlauksbrauði og salati. Einnig má hafa sósu að eigin vali með
Sellerírótarmauk
1/2 stk. sellerírót
1 stk. laukur
ólífuolía
salt og pipar
1 dl rjómi
Afhýðið seljurótina og skerið í teninga. Afhýðið laukinn og saxið. Steikið
seljurótarteninga og lauk í smá olíu á pönnu og kryddið með salti og pipar.
Hellið rjómanum út á og sjóðið þangað til seljurótin er orðin mjúk. Bætið meiri
rjóma saman við ef ykkur finnst þess þurfa. Setjið þetta í matvinnsluvél, maukið
vel og smakkið til með salti og pipar.