Skötuselur með hvítlaukskartöflumauki og mangósalati

SKÖTUSELUR
800 g hreinsaður
skötuselur
100 g smjör
salt
pipar
Skötuselurinn er kryddaður með salti og steiktur í um þann bil 2-3 mín á hvorri hlið upp úr smjöri.

KARTÖFLUMAUK
2 bökunarkartöflur
2 hvítlauksgeirar
½ bolli rjómi
100 g smjör
salt
Afhýðið kartöflur og hvítlauksgeirana. Sjóðið í söltu vatni. Maukið kartöflurnar með hvítlauknum og bætið rjóma
og smjöri saman við.

MANGÓSALAT
1 mangó skorið
1 paprika
50 g steiktir sveppir
salt
ólífuolía
Skerið niður allt grænmetið fínt. Blandið saman og kryddið til með salti og olífu olíu og setjið undir
fiskinn.