Skötuselur í mangóchutneysósu
700 g skötuselur
250 g rækjur
3 msk karrímauk
3 msk mangó chutney
2 msk kóríander
1 tsk stór hvítlauksgeiri
grænmetiskraftur
1/4 lítri rjómi
4 msk olía
salt
nýmalaður pipar
Hreinsið skötuselinn og skerið í jafna bita. Hrærið saman karrímauki og mangó
chutney og saxið kóríander út í maukið. Afhýðið hvítlauk, pressið og bætið út í
maukið ásamt grænmetiskrafti og rjóma. Hitið olíu á pönnu. Steikið skötuselinn í
um 1 mín. á hvorri hlið á vel heitri pönnu. Kryddið með salti og pipar en
athugið að það þarf lítið salt vegna saltinnihalds grænmetiskraftsins. Raðið
skötuselnum í smurt eldfast mót og setjið maukið yfir. Bakið í 10 mín. við
200°c. Takið fatið út eftir 8 mín. og stráið rækjunum yfir, Setjið fatið inn í
ofninn í 2 mín. til viðbótar.