Skötuselur með rósmaríni og krydduðu bulgur (Fyrir 4)
700 g Skötuselur
2 msk matarolía
1 msk ferskt rósmarín eða 1 tsk þurrkað
1/2 tsk salt
pipar
Penslið skötuselinn með olíunni og kryddið með rósmaríni, salt og pipar.
Snöggsteikið í dálítilli olíu í 3-5 mínútur á hvorri hlið.
Bulgur
2 1/2 dl bulgur, gróft
2 1/2 dl vatn
1/2 grænmetisteningur
8 sólþurrkaðir tómatar í olíu
50 g ólífur, svartar
1 búnt dill, saxað eða klippt
pipar
Leysið grænmetisteninginn upp í sjóðandi vatni og hellið yfir bulgukornin.
Látið standa um stund. Sneiðið tómatana og ólífurnar þunnt og blandið
saman við bulgukornin ásamt dilli. Kryddið með pipar.
Berið einnig fram snittubrauð og grænmetissalat með réttinum.