Skötuelur á teini
700 - 800 g skötuselur, eða annar þéttur hvítur fiskur
8 hvítlauksrif
2 msk extra virgin ólífuolía
safi úr sítrónu
1/2 tsk allrahanda
1/2 tks kanill
cayannepipar á hnífsoddi
Skerið fiskinn í um 2-3 cm bita. Hrærið allt hráefnið saman og leggið bitana
í.
Látið marinerast í tvo tíma. Þræðið á pinna ásamt grænmeti t.d. papriku og lauk.
Grillið í um 3 mínútur á hlið. ATH þessi marinering hentar einnig vel með
kjúkling.